ÞJÓNUSTA OG SKILMÁLAR

Upplýsingar um seljanda

Seljandi er Enso ehf., kt. 470102-2680, til húsa að Faxafen 10, 108 Reykjavík. Sími 5173800 

Almennt

Enso ehf. áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga og einnig að breyta verðum eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis.

Afhending vöru
Allar vörur eru afgreiddar næsta virka dag eftir pöntun. Sé varan ekki til á lager mun þjónustufulltrúi hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar. Öllum pöntunum er dreift af Íslandspósti og gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar. Enso ehf. ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Verði vara fyrir tjóni frá því að að hún er send frá Enso til viðtakanda er tjónið á ábyrgð kaupanda.

Skilafrestur og endurgreiðsluréttur
Kaupandi hefur 30 daga til að hætta við kaupin að því tilskildu að hann hafi ekki notað vöruna, henni sé skilað í góðu lagi í söluhæfum, óuppteknum og upprunalegum umbúðum. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Fresturinn byrjar að líða þegar varan er afhent skráðum viðtakanda. Kvittun fyrir vörukaupunum þarf að fylgja með. Endurgreiðsla er framkvæmd að fullu ef ofangreind skilyrði eru uppfyllt og eftir að varan er móttekin. Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd. Vinsamlegast hafið samband við Enso ehf. með spurningar á netfangið enso@enso.is og í síma 5173800.

Verð
Vinsamlegast athugið að verð á netinu getur breyst án fyrirvara.

Lög og varnarþing.

Þessi samningur er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur. 

Trúnaður og persónuupplýsingar:

Fullum trúnaði er heitið vegna persónuupplýsinga. Enso ehf mun ekki láta þriðja aðila í té persónuupplýsingar sem til verða við pantanir né vista upplýsingar um þá sem panta lengur en ástæða er til.

Hleð
Hleð